Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Fjöru- og bæjarganga á Svalbarðseyri Gönguleið

Skemmtileg og þægileg ganga meðfram sjónum og í gegnum þorpið. Víða hægt að setjast á bekki á leiðinni og njóta líðandi stundar.

Nánari upplýsingar

Landshluti
Norðurland, Svalbarðsströnd
Upphafspunktur
Vitinn
Erfiðleikastig
Þrep 1 - Létt leið
1 2 3 4
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
30 - 60 mínútur
Yfirborð
  • Bundið slitlag
  • Möl
  • Trjákurl
  • Blandað yfirborð
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
Engin þjónusta
https://www.northiceland.is/is/afangastadir/baeir-thorp/svalbardseyri
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Lagt er af stað frá vitanum niður við fjöru og gengið meðfram sjónum í norðurátt eftir fínum slóða. Víða er hægt að bregða sér ofan í fjöruna, anda að sér sjávarloftinu og njóta útsýnis inn og út Eyjafjörðinn. Gengið er norður fyrir seinni tjörnina (Tungutjörn) og beygt upp gamla afleggjarann í átt að Helgafelli og síðan beygt til suðurs inn á vegarslóða sem leiðir inn á götuna Tjarnartún. Við gatnamótin er beygt upp til vinstri á götuna Bakkatún og þaðan inn á stíg sem liggur að skógarreitnum og upp með Valsáránni. Þá er beygt til suðurs inn í íbúðahverfið og genginn stígur sem liggur frá Laugartúni að Smáratúni og sú gata gengin áfram suður þar til komið er á göngustíginn sem liggur niður í fjöru og komið er aftur á upphafsstað. Á brekkunni blasir kirkjan við sem og bærinn Svalbarð þar sem er rekið myndarlegt kúabú.