Tvær hringleiðir á Þórshöfn Gönguleið
Tvær skemmtilegar hringleiðir um Þórshöfn. Annars vegar um sjálfan bæinn og hins vegar er farið aðeins út fyrir þorpið þar sem útsýni er gott út á Þistilfjörðinn og yfir þorpið.
Nánari upplýsingar
Landshluti
Norðurland, Langanesbyggð
Upphafspunktur
Bílastæði í miðbænum
Merkingar
Ómerkt leið - Engar merkingar til að vísa leið
Tímalengd
1 - 2 klukkustundir
Yfirborð
- Bundið slitlag
- Möl
- Gras
- Þýft
- Blandað yfirborð
- Óskilgreint
Hindranir
Þrep - Trappa, stallur, stig eða lágur hjalli sem þarf að stíga upp á
Hættur
Engar hættur á leiðinni
Þjónusta á leiðinni
- Salerni
- Sorplosun
- Tjaldsvæði
Ýmis þjónusta fyrir ferðamenn er í boði á Þórshöfn https://www.northiceland.is/is/afangastadir/baeir-thorp/thorshofn
Lýsing
Óupplýst leið
Tímabil
Opið alla árstíma
Hluti af lengri hring liggur yfir tún, gæta þarf þess að troða ekki grasið niður fyrir slátt
Hluti af lengri hring liggur yfir tún, gæta þarf þess að troða ekki grasið niður fyrir slátt
Gangan hefst við lystigarðinn, best að fara inn um vestur eða suðurinngang. Gengið er að regnbogahringnum og þá haldið á göngustíginn sem þverar Miðholt (við hliðina á Heilsugæslunni) og Austurveg og haldið upp að íþróttahúsinu. Þaðan er gengið í átt til sjávar framhjá félagsheimilinu Þórsveri og haldið að Hleinartanga þar sem byggður hefur verið útsýnispallur. Áfram er haldið eftir Bakkavegi, að matvöruversluninni og aftur inn í lystigarðinn og er þá fyrri hringnum lokað. Seinni hringurinn hefst með því að ganga út úr garðinum í átt að leikskólanum og áfram þaðan að göngustígnum að Hálsvegi. Þar er beygt til vinstri og gengið í átt að götunni Miðholti og gengið eftir henni að tjaldsvæðinu. Þá er beygt til hægri og farið eftir stíg sem liggur meðfram ánni, yfir litla trébrú og í gegnum kirkjuskóginn, framhjá nestisaðstöðuskýli og að kirkjunni. Frá kirkjunni er gengið áfram suður Sunnuveginn og út túnið í átt að Ásgarði, síðan reiðveginn ofan við Ásgarð í átt að Fossá og þaðan niður á þjóðveg. Gönguglaðir geta lengt ferðina með því að ganga upp með Fossánni að sunnan og upp að fossinum. En annars er gengið meðfram þjóðveginum og aftur inn í þorpið. Við hafnargarðinn eru fræðandi söguskilti og stuttu þar á eftir er elsta húsið á Þórshöfn, Sandvík sem var byggt 1902. Frá Sandvík er gengið að upphafsstað.