Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Kajakferðir og róðrabretti

Það er skemmtileg upplifun fyrir alla fjölskylduna að sigla um á kajak eða sjóbretti, en margir aðilar um allt land bjóða upp á slíkar siglingar, bæði á sjó og vötnum.

Kayakar.is
Leigan er staðsett á Skagaströnd sem er 20 mínútum frá þjóðvegi 1. Hægt er að leigja kayak(a) klukkutíma í senn eða bóka í skipulagða ferð með leiðsögn og er hægt að bóka á bókunarvef eða hringja. Gott er að hafa í huga að veður er breytilegt og ekki er ráðlagt að fara út á sjó ef vindaspá sýnir yfir 4 m/s.Bátarnir okkar eru “sit on top” og þarf því að gera ráð fyrir því að verða blautur, þeir eru einungis ætlaðir til siglinga á sjó og í vötnum.Ef þú tekur bát með þér þarf bíllinn að vera útbúinn til þess. Við bjóðum upp á tvo afhendingarstaði á svæðinu en að öðru leyti ert þú á eigin vegum.  Þú berð ábyrgð á þínu öryggi. 
Ferðaþjónustan Bakkaflöt
Bakkaflöt er notalegt tjaldsvæði í Skagafirði, staðsett við Svartá og umkringt fallegri náttúru. Svæðið er hluti af fjölskyldureknu ferðaþjónustufyrirtæki sem býður upp á fjölbreytta gistingu, afþreyingu og góða þjónustu á einum stað. Á tjaldsvæðinu er aðstaða fyrir tjöld, hjólhýsi og húsbíla með aðgangi að salernum, sturtum, eldhúsi, rafmagni og sameiginlegri setuaðstöðu. Hundar eru velkomnir svo framarlega sem þeir eru hafðir í taumi. Gestir geta einnig notið veitingastaðar, bars, heitra potta og sundlaugar á svæðinu. Bakkaflöt er jafnframt þekkt fyrir flúðasiglingar á Austari- og Vestari-Jökulsá, sem hafa verið í boði frá árinu 1994 og eru meðal vinsælustu afþreyingar í Skagafirði. Hvort sem markmiðið er að slaka á í fallegu umhverfi eða upplifa ævintýri á ánni er Bakkaflöt frábær áfangastaður fyrir ferðafólk á Norðurlandi. 
Gentle Giants
Hvalaskoðun og ævintýri á sjó frá Húsavík LANGAR ÞIG Í ALVÖRU ÆVINTÝRI? Skemmtilegir afþreyingarmöguleikar í einstakri náttúru og fegurð á Skjálfandaflóa. Við bjóðum uppá alls konar bátsferðir frá Húsavík. Tilvalið fyrir einstaklinga og hópa af öllum stærðum og gerðum við öll tilefni. Gentle Giants er fjölskyldufyrirtæki á Húsavík með 160 ára fjölskyldusögu við Skjálfandaflóa og áratuga reynslu í að skipuleggja eftirminnilegar ferðir. FJÖR Í FLATEY Upplifðu paradís Skjálfandaflóa í allri sinni dýrð með einstaka náttúru og ríku fuglalífi. Gentle Giants býður uppá alls konar sérferðir frá Húsavík til Flateyjar. Tilvalið fyrir einstaklinga og hópa við öll tilefni, einfalt eða lúxus með öllu. Fyrirtækið er með sterkar rætur í Flatey og hefur uppá að bjóða glænýja og umhverfisvæna byggingu með stórum veislusal ásamt úti grillaðstöðu í eyjunni. Verið velkomin um borð!
The Traveling Viking
The Traveling Viking er nýr og framsækinn ferðaskipuleggjandi í Eyjafirði með áherslu á norðaustur Ísland.The Traveling viking býður upp á persónulega og mjög góða þjónustu við ferðamenn á svæðinu, hvort sem þar er um að ræða erlent sem innlent ferðafólk. Við viljum með persónulegri þjónustu, ríkri þjónustulund og góða skapinu,  búa okkur til sérstöðu á markaðnum og bjóða upp á úrvalsferðir fyrir jafnt minni sem stærri hópa. The Traveling Viking býður uppá ótal möguleika á ferðum um svæðið. Einnig getum við hæglega sett saman ferð fyrir ykkur hvert á land sem er. Við erum með stóran lista af samstarfsaðilum, sem við getum með stuttum fyrirvara hóað í okkur til aðstoðar við að búa til ógleymanlega ferð, hvort sem þar er um að ræða stóra sem minni hópa. Það breytir engu hvort um er að ræða saumaklúbb, útskriftarhópa, félagasamtök, vinnufélaga, íþróttahópa eða hvað sem er. Hafið samband og við hjálpum ykkur að búa til þá ferð sem þið viljið fá.

Aðrir (4)

Arctic Surfers Norðlingabraut 4 110 Reykjavík 5512555
Top Mountaineering / Top Trip Hverfisgata 18 580 Siglufjörður 8984939
Sigló Sea Norðurtangi 580 Siglufjörður 786-7225
North Fjord Kayak Árbakki 621 Dalvík 762-2546