Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Blátt samstarf

3.- 5. október

Opin alþjóðleg ráðstefna á Stéttinni og í Hvalasafninu á Húsavík

3-5 október 2026

Skipulögð af Rannsóknasetrum Háskóla Íslands í Þingeyjarsveit og á Húsavík

Fræðasviðið sem kennt er við blá hugvísindi beinir sjónum að mikilvægi hafsins fyrir menningu okkar, sögu og lífsviðurværi. Þannig má auka skilning okkar á – og efla tengslin við – þennan mikilvæga (ef til vill mikilvægasta) hluta af vistkerfi Jarðar. Megináhersla ráðstefnunnar er á listræna tjáningu, fagurfræði og samfélagsverkefni sem tengjast hafinu og annarri náttúru. Markmiðið er að efla þverfaglegt norrænt samstarf byggt á bláum hugvísindum sem vaxandi rannsóknarsviði þar sem menningarrannsóknir tengdar hafinu eru á margvíslegan hátt tengdar rannsóknum á sviði líffræði og öðrum raunvísindum. Á tímum margþættrar umhverfisvár er slík viðurkenning á flóknum tengslum menningar og náttúru bæði óhjákvæmileg og lífsnauðsynleg.

Ráðstefnan fer fram á ensku.

Allir velkomnir.

GPS punktar

N66° 2' 35.940" W17° 20' 27.745"