Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Blood Harmony á Húsavík Öl

6. ágúst kl. 20:00-22:00

Upplýsingar um verð

5000 kr

Hljómsveitin Blood Harmony heimsækir Húsavík! 

Blood Harmony samstarfsverkefni systkinanna Arnar Eldjárn, Aspar Eldjárn og Bjarkar Eldjárn sem hófst snemma árs 2021 þegar heimsfaraldurinn skall á og sökum þess voru þau flutt í heimahagana fyrir norðan. Þau umbreyttu kjallaranum á æskuheimilinu Tjörn í upptökustúdíó og hófu að taka upp lög sem Örn og Ösp höfðu bæði samið í gegnum árin en aldrei fundið þeim farveg fyrr en í þessu verkefni. 

Nú fimm árum síðar er loksins komið að því að fagna útgáfu plötunnar, Simple Pleasures, sem komin er út á vínyl og geisladisk og verður hún til sölu að tónleikum loknum. Þau munu leika lög af plötunni í heild sinni, auk ábreiða af lögum sem eru í uppáhaldi hjá systkinunum.

Við hlökkum til að sjá ykkur á Húsavík Öl 

GPS punktar

N66° 2' 52.834" W17° 20' 38.570"

Staðsetning

Húsavík

Sími