Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Er þetta norður?

6. júní - 15. september

Upplýsingar um verð

kr. 2.000

Samsýning í Listasafninu á Akureyri

Hvað afmarkar það sem við köllum norður? Hvar liggja landamæri norðurheimskautsins og hvað einkennir þau sem eiga þar heima? Er meðal þeirra að finna sameiginlega reynslu þrátt fyrir fjölbreytta menningarflóru? Á samsýningunni Er þetta norður? kannar listafólk frá hinu víðfeðma norðri svörin við þessum spurningum.

Listafólkið sem tekur þátt í sýningunni kemur frá Samasvæði Finnlands, Noregs og Svíþjóðar, Íslandi, Grænlandi, Síberíu, Alaska og Kanada.

Þátttakendur eru Anders Sunna, Dunya Zakharova, Gunnar Jónsson, Inuuteq Storch, Marja Helander, Máret Ánne Sara, Maureen Gruben og Nicholas Galanin.

Sýningarstjórar: Daría Sól Andrews og Hlynur Hallsson.

GPS punktar

N65° 40' 49.442" W18° 5' 31.152"

Staðsetning

Akureyri