Upplýsingar um verð
Ókeypis aðgangur
Útilistasýningin Heimalingar 26 var opnuð í Dyngjunni - listhúsi í Eyjafjarðarsveit í lok maí. Sumarið 2020 bauð listakonan Guðrún Hadda Bjarnadóttir félögum úr Myndlistafélaginu á Akureyri að standa saman að útilistasýningu við Dyngjuna, fjölbreytt listaverk sem þoldu veður og vind íslensks sumars voru sýnd þar í þrjá mánuði og leikurinn endurtekinn árlega síðan; þetta er því sjöunda árið í röð sem sýningin er haldin. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir að njóta menningar í fagurri náttúru Eyjafjarðarsveitar. Opið milli 14-17 og samkvæmt samkomulagi.
Dyngjan - listhús er 17 mínútna akstur á Eyjafjarðarbraut Vestri (vegur 871).