Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Hinsegin hátíð

19.-21. júní

Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra verður haldin dagana 19.-21. júní 2026.

Markmið hátíðarinnar er að auka sýnileika LGBTQ+ samfélagsins og byggja upp samfélag sem er opið og öruggt fyrir alla íbúa og gesti. Hátíðin byggir á því góða starfi sem unnið hefur verið í Hrísey en fyrsta Hinsegin hátíðin í Hrísey var haldin árið 2023.

Öll sveitarfélögin á Norðurlandi eystra, ásamt samtökunum Hinsegin Norðurland og Hinsegin hátíðinni í Hrísey standa að hátíðinni. Samstarfsaðilarnir vinna saman að undirbúningi hátíðarinnar, sem er hugsuð þannig að viðburðir fari fram á öllu svæðinu.

Verkefnið Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hlaut styrk úr Uppbyggingarsjóði Sóknaráætlunar Norðurlands eystra.

Hægt er að sjá alla viðburði helgarinnar inn á heimasíðu hátíðarinnar: https://www.hinseginhatid.is/vidburdir