Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Hönnunarþing 2026

25.-26. september

Velkomin á HönnunarÞing // DesignThing, hátíð hönnunar og nýsköpunar! Í ár verður hátíðin óvenjulega orkumikil

Því áhersla ársins er á orku og margvíslega snertifleti hennar við hönnun og nýsköpun.

Hvað gerist þegar hugmynd kviknar?
Hvað gerist þegar neisti verður að veruleika?
Hvað gerist þegar hönnun fær víbrandi gott svigrúm?

Við erum afar spennt að sameina fjölbreytta sýn hönnuða, frumkvöðla og sérfræðinga á sviði orku og bjóða gestum að kanna hvernig orkumikið fólk, form, tækni og framtíðarsýn mætast í einstakri upplifun.

Á dagskránni eru hiti, gleði, vöruhönnun, frumkvöðlar á sviði orkumála, samfélagsverkefni tengd sjálfbærni, nýsköpun í auðlindanýtingu, krókódílar, nemar og kennarar frá LHÍ, dans, fjármögnun, sjóböð, óvæntir viðburðir og margt fleira.

Fram að hátíðinni munum við segja ykkur frá dagskrárliðunum og nánari upplýsingar - það sem skiptir máli núna er að taka tímann frá, njóta sumarsins og hlakka til þess að taka þátt í HönnunarÞingi 2026!

Við hlökkum til að sjá ykkur á einu eða öllu!

🎟️Aðgangur er ókeypis á alla dagskrárliði nema á lokaviðburðinn í GeoSea
🔋Fosshótel býður upp á afslátt á gistingu þessa daga
👉 https://hradid.is/honnunarthing/
*með fyrirvara um líflegar breytingar og skapandi útfærslur á dagskrá