Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Hríseyjarhátíð

10.-11. júlí

Upplýsingar um verð

Frítt

Hríseyjarhátíðin fer fram aðra helgina í júlí ár hvert og stendur yfir heila helgi. Boðið er upp á fjölskylduvæna dagskrá sem felst m.a. í garðakaffi, óvissuferðum um eyjuna, fjöruferð, kvöldvöku, varðeld og söng.

Hríseyjarhátíðin hefst á föstudegi með því að nokkrir Hríseyingar og sumarhúsaeigendur bjóða heimafólki og gestum í kaffisopa heim í görðunum sínum. Upplagt er að rölta á milli garðanna og njóta gestrisni og samvista við skemmtilegt fólk í fallegu umhverfi. Einnig verða óvissuferðir fyrir börn, unglinga og fullorðna.

Aðaldagskráin er svo á laugardeginum, þá er í boði dagskrá frá hádegi og fram á kvöld, sem felst í dráttavélaferðum, aðgang að leiktækjum, tónlist, ratleik og fleira. Að venju endar hátíðin á kvöldvöku á sviðinu, varðeldi og brekkusöng. Hátíðin er fyrst og fremst fjölskylduhátíð þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.

Í Hrísey er öll almenn þjónusta til staðar s.s verslun, veitingahús, sundlaug, tjaldsvæði og gisting. Til Hríseyjar gengur ferjan Sævar og er boðið upp á allt að níu ferðir á dag. Siglingin tekur aðeins 15 mínútur frá Árskógssandi, sem er um 35 kílómetra frá Akureyri.

Aðgangur á hátíðina er ókeypis.
 

GPS punktar

N65° 58' 46.820" W18° 22' 37.938"

Staðsetning

Hrísey