Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

INTO Festival

7.- 9. júní

Þriggja daga alþjóðleg listahátíð í Alþýðuhúsinu á Siglufirði

INTO er alþjóðleg hátíð skapandi fólks sem haldin er í Alþýðuhúsinu á Siglufirði en menningarstarf Alþýðuhússins hreppti Eyrarrósina 2023. Á hátíðina mætir fjölbreyttur hópur listafólks víða að, með opinn huga og einlæga löngun til að verða fyrir áhrifum hvert af öðru og af heimafólki. Á slíku stefnumóti verður til listrænn galdur.

Stjórnendur INTO eru þau Aðalheiður S. Eysteinsdóttir (IS) og Will Owen (US) en þau hafa unnið saman að sýningarverkefnum í Danmörku og á Íslandi í samstarfi við Aros listasafnið í Árósum og heimafólk á hverjum stað. INTO-hátíðin var fyrst haldin í Assedrup árið 2023, er núna hluti af Listahátíð í Reykjavík og stefnt er að því að hátíðin 2025 fari fram í New York.

Siglufjörður mun iða af sköpunarkrafti alla hátíðardagana en á dagskránni eru meðal annars myndlistarsýningar, gjörningar, útilistaverk, tónleikar og ljóðalestur. Viðburðirnir fara fram bæði í Alþýðuhúsinu og víðs vegar um bæinn, inni og úti. Aðgangur að öllum viðburðum er ókeypis.

GPS punktar

N66° 9' 10.661" W18° 54' 28.144"

Staðsetning

Siglufjörður