Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Kaffihlaðborð Áskaffi góðgæti í Héðinsminni, Skagafirði.

4.- 5. júlí

Upplýsingar um verð

3.900 kr. fyrir 12 ára og eldri, 2.000 kr. fyrir yngri.

Klassískt íslenskt kaffihlaðborð Áskaffi í Héðinsminni!

Helgina 4. og 5. júlí bjóðum við ykkur velkomin í sannkallaða kökuveislu eins og hún gerist best! Áskaffi er í Héðinsminni þar sem borðin munu svigna undan klassísku, íslensku bakkelsi.

Ef þig langar í ósvikna sveitastemningu, ilm af kaffi og kökur sem minna á bestu minningarnar úr ömmubakstri, þá máttu ekki láta þessa helgi framhjá þér fara.

Hvenær: Laugardaginn 4. júlí og sunnudaginn 5. júlí.

Hvar: Í Héðinsminni Skagafirði.

Hvað er í boði? Nýsteiktar pönnukökur, skonsu brauðtertur, dýrindis rjómatertur, kleinur og allt það klassíska sem fyllir hjartað (og magann) af hlýju. Og að sjálfsögðu nóg af rjúkandi kaffi!

Taktu fjölskylduna og vinina með í sunnudagsbíltúr. Við hlökkum mikið til að taka á móti ykkur og eiga dásamlega helgi saman.

Verð: 3.900kr. á mann fyrir 12 ára og eldri, 2.000 kr. fyrir yngri.

Húsið opnar kl. 14:00 báða dagana.

Hlökkum til að sjá ykkur!

GPS punktar

N65° 32' 10.867" W19° 18' 59.375"

Staðsetning

Félagsheimilið Héðinsminni, Skagafirði

Sími