Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Kaffihlaðborð Áskaffi góðgæti í Héðinsminni, Skagafirði.

1.- 2. ágúst

Upplýsingar um verð

3.900 kr. fyrir 12 ára og eldri, 2.000 kr. fyrir yngri.

Kaffihlaðborð Áskaffi góðgæti í Héðinsminni Skagafirði

Helgina 1. og 2. ágúst verður glæsilegt kaffihlaðborð hlaðið heimabökuðu góðgæti sem ilmar af hefð og sumri.

Á meðal þess sem verður á boðstólnum eru:
Rabarbarapæ, eplakaka, gerbollur og snúðar, marengstertur og gamaldags rjómatertur, fjölbreytt úrval osta, salöt og sultur.

Að sjálfsögðu verða einnig gömlu góðu klassíkurnar á sínum stað – nýsteiktar kleinur, mjúkar pönnukökur, lagtertur og ýmislegt fleira sem gleður bæði auga og munn.

Komið og njótið notalegrar kaffistundar í hlýlegu umhverfi þar sem heimabakaðar kræsingar og góðar samverustundir fara saman.

Opið laugardag og sunnudag frá kl. 14:00–17:00.

Verðið það sama og áður, 3.900 kr. fyrir 12 ára og eldri. 2.000kr. fyrir yngri.

Verið hjartanlega velkomin á kaffihlaðborð Áskaffi góðgæti í Héðinsminni – við hlökkum til að taka á móti ykkur.

GPS punktar

N65° 32' 10.789" W19° 18' 59.936"

Staðsetning

Skagafjordur

Sími