Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Listasumar 2026

2.-18. júlí

Listasumar 2026 hefst 25. júní og stendur til 18. júlí. Fram undan er fjölbreytt dagskrá með viðburðum um allan bæ fyrir fólk á öllum aldri.

Listasumar fer af krafti af stað fimmtudaginn 25. júní og einn af hápunktum hátíðarinnar verður á sjálfan opnunardaginn þegar Gilfélagið á Akureyri býður gestum og gangandi á dansiball í göngugötunni þar sem göngugötunni verður breytt í eitt stórt dansgólf. Á dagskrá hátíðarinnar eru einnig skapandi vinnustofur, litrík töfrasýning, tónlistaratriði, uppistand og myndlistasýningar, og margt fleira.

„Á dagskrá eru fjölbreyttir viðburðir sem fara fram um allan bæ,“ segir Elísabet Ögn Jóhannsdóttir, verkefnastjóri Listasumars, sem mælir með að bæjarbúar og gestir kynni sér dagskrána. „Öll ættu að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi og nýtt tækifærið til að njóta þeirra fjölmörgu menningar- og skemmtiviðburða sem í boði eru,“ segir Elísabet Ögn.

Aðgangur er ókeypis á alla viðburði Listasumars.

Nánari upplýsingar og dagskrá má finna á www.listasumar.is en enn eru viðburðir að bætast við daglega.

GPS punktar

N65° 41' 2.053" W18° 6' 43.832"

Staðsetning

Akureyri