Upplýsingar um verð
Uppgötvaðu töfra Rabarbarahátíðar á Blönduósi – líflega sumarhátíð í gamla bænum þar sem mannlíf, listsköpun og gleði ráða ríkjum. Njóttu rabarbara í mismunandi formi við undileik lifandi tónlistar. Um er að ræða fjölskylduvænar viðburða í hlýlegu og notalegu andrúmslofti í gamla bænum á Blönduósi. Fullkomið stopp fyrir þá sem eiga leið um norðurland og vilja upplifa eitthvað alveg einstakt. 🌿🍓
Dagskrá Rabarbarahátíðar hefst kl. 10:00 með skemmtilegu samhjóli þar sem þátttakendur hjóla saman um svæðið og njóta útivistar og samveru, (6) Samhjól á rabarbarahátíð 27.6.2026 | Facebook
Kl. 10:30 fer fram hið vinsæla Rabarbarahlaup, 500 metra hlaup fyrir börn 12 ára og yngri – frábær skemmtun fyrir yngstu gestina.
Kl. 11:00 opnar hátíðarsvæðið Krúttið, þar sem gestir geta:
- kynnt sér fjölbreyttar vörur frá heimafólki
- keypt vörur og smakkað rabarbarainnblásna rétti og drykki
- tekið þátt í listasmiðjum fyrir börn
- farið í fræðslugöngur og notið fjölbreyttrar dagskrár
Yfir daginn verður einnig boðið upp á kokteilanámskeið, þar sem þátttakendur læra að útbúa spennandi drykki með rabarbara í aðalhlutverki.
Dagskráin einkennist af hlýlegu andrúmslofti, fjölskylduvænni stemningu og líflegri þátttöku gesta.