Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Slægjufundur 2026

24. október kl. 14:00
Á fyrsta degi vetrar, 24. október næstkomandi, verður haldinn Slægjufundur í Skjólbrekku kl. 14:00!
 
Venju samkvæmt leggja allir til veitingar á sameiginlegt kaffiborð - kaffi, te og djús verður á staðnum.
 
Húsið opnar klukkan 13 og verður blakdeild Mývetnings með kökubasar 🍰 hægt verður að greiða með pening eða millifærslu á staðnum.
 
NÝJUNG!!!! Kræsingin 2026 - í fyrsta sinn verða veitt verðlaun fyrir Kræsinguna. Dómnefnd mun veita verðlaun fyrir glæsilegustu kræsinguna 🏆
Það verður skemmtileg dagskrá fyrir unga sem aldna!
 
Komum saman og fögnum vetri með góðri stund og enn betri kræsingum❄️☃️
 
Um kvöldið verður kvöldskemmtun í Skjólbrekku, Tónlistarbingó og uppistand - FRÍTT INN.