Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Sumar & Bjórhátíð LYST

17.-19. júlí
Sumar & bjórhátíð LYST 2026 fer fram helgina 17.–19. júlí í Lystigarðinum á Akureyri

Þetta verður helgi full af bjór, mat, tónlist og góðri stemningu um allan bæ — með LYST í Lystigarðinum sem aðalmiðju hátíðarinnar.

Á föstudegi og sunnudegi verða happy hour tilboð á bestu börum Akureyrar fyrir armbandshafa, ásamt matartilboðum á völdum veitingastöðum um bæinn.

Laugardaginn 18. júlí kl. 13:00–18:00 taka bestu brugghús landsins yfir LYST með opnum dælum, bjórsmakki, veitingasöla í garðinum, Hyalin pop-up búð og lifandi tónlist yfir daginn. Þar verður hægt að smakka fjölbreytt úrval bjóra frá frábærum brugghúsum í léttri og skemmtilegri sumarstemningu.

Um kvöldið taka við útitónleikar LYST þar sem Daði Freyr stígur á svið ásamt Sturla Atlas. Eftir tónleikana heldur stemningin áfram á Leynibarnum með Sturla Atlas.

Armband á hátíðina gildir í bjórsmakk milli 13:00–18:00 á laugardegi og sem miði á útitónleikana með Daða Frey ásamt því að veita afslætti um allan bæ yfir helgina.

Verð:
Armband: 12.900 kr.
Bjórkort, 5 bjórar: 6.000 kr. (bara selt 18 julí)
Bjórtóken, 1 bjór: 1.500 kr. (bara selt 18 julí)

GPS punktar

N65° 40' 28.191" W18° 5' 37.927"

Staðsetning

Lystigarðurinn á Akureyri