Upplýsingar um verð
Sveitavegir er tónlistarhátíð sem fer fram í félagsheimilinu Höfðaborg á Hofsósi 25. júlí 2026. Tónlistarfólk héðan (úr Skagafirði) og þaðan (að sunnan) kemur saman og flytur sveitatónlist, með fyrirmyndir sóttar vestur um haf. Með henni flæða einnig þjóðlagapopp og íslensk sveitatónlist.
Hátíðin fer fram í félagsheimilinu Höfðaborg á Hofsósi, sem hentar vel til tónleikahalds. Hofsós og Skagafjörður eru líka í sérflokki fyrir svona viðburð: hér hefur tónlist, söngur og frásagnarhefð verið samofin sveitalífinu í langan tíma. Í raun má segja að allir sveitavegir liggi til Hofsóss.
Dagskrá:
Upphitun (opin öllum): 15:30–16:30
Megindagskrá: 20.00 og fram til miðnættis
Hljómsveitir sem koma fram:
Jón Scrappé
Lára og húsið í Sléttuhlíð
Lævís hestur
Sveitavegir Helga Sæmundar og Reynis Snæs
Sverrisson Hotel
Miðar:
Miðar fást við innganginn og á Tix.is (hefst þar 1. júní).
Verð: 3.500 kr.
Athugið að sætaframboð er takmarkað við aðgengi að Höfðaborg.