Þorvaldsdalsskokkið 2026
Þorvaldsdalsskokkið, elsta skipulagða óbyggðahlaup á Íslandi, verður haldið í 33. sinn þann 4. júlí. 2026.
Líkt og undanfarin ár verða tvö hlaup og eru þau hluti af norðurhluta Landvættar. Auk þess verður boðið upp á tvöfaldan Þorvaldsdal en það hlaup hefst kl. 9:00 í rásmarki við Stærri-Árskóg og er Þorvaldsdalur hlaupinn fram og til baka.
Tímatöku lýkur 17:00
Í öryggisskyni hvetjum við alla þátttakendur til að kynna sér aðstæður vel og huga sérstaklega að veðurspá á hlaupdegi. Allir sem taka þátt eru hvattir til að hlaupa með fullhlaðinn síma með sér. Það er ekki gsm-samband á allri hlaupaleiðinni en engu að síður þá dettur það inn annað slagið og getur skipt sköpum ef mikið liggur við.
Nánari upplýsingar má finna hér