Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Vatnsnes Trail Run

24. júlí

Utanvegahlaup í einstöku náttúrulegu umhverfi í Vatnsnesfjalli fyrir ofan Hvammstanga.


Boðið verður upp á 1,5 km fjölskylduhlaup (frítt), 10 km og 20 km leiðir.

Ræsing 20+ km kl. 14
 
Ræsing 10 km kl. 15
 
Vegleg útdráttarverðlaun verða veitt og einnig verðlaun fyrir efstu þrjú sætin í karla og kvennaflokkum í báðum vegalengdum. Léttar veitingar verða í boði fyrir alla þátttakendur í 10 og 20 km hlaupunum að loknu hlaupi.


Fjölskylduhlaup, tæpir 1,5 km, verður einnig í boði og byrjar það og endar við Félagsheimilið á Hvammstanga. Ræst er í hlaupið kl. 13 og er frítt fyrir alla í hlaupið og glaðningur að hlaupi loknu fyrir börnin! Öll börn sem skrá sig í hlaupið fá hlaupanúmer sem þarf að sækja fyrir hlaup.

Fallegar, fjölbreyttar og frábærar hlaupaleiðir í mögnuðu umhverfi- stuð, stemning og skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
 
Hafið og fjöllin og allt þar á milli svo allir ættu að geta fundið sína vegalengd við hæfi!
 

Skráning í öll hlaupin er á netskraning.is og er hægt að skrá sig til kl. 11 á hlaupadegi.

Hægt að fá endurgreitt viku fyrir hlaup, senda tölvupóst á vatnsnestrailrun@gmail.com
 
Þátttakendur fá frítt í sund í Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra að hlaupi loknu gegn framvísun rásnúmera.

GPS punktar

N65° 23' 49.053" W20° 56' 38.505"

Staðsetning

Hvammstangi