Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Fundur um flugmál á Akureyri

Markaðsstofa Norðurlands stefnir að því að halda fund um flugmál á Hótel Kea á Akureyri mánudaginn 16. desember n.k. 12:00 – 14:00.

Markaðsstofa Norðurlands stefnir að því að halda fund um flugmál á Hótel Kea á Akureyri mánudaginn 16. desember n.k. 12:00 – 14:00. Léttur hádegismatur verður í boði án endurgjalds, en nauðsynlegt er að skrá sig hér .

Þingmönnum norðaustur- og norðvesturkjördæma er sérstaklega boðið til þessa fundar.

Dagskrá fundarins verður á þessa leið:

  • Kynning á greinargerð um ávinning af millilandaflugi um Akureyrarflugvöll – Jón Þorvaldur Heiðarsson
  • Kynning á nýrri úttekt á rekstri og mannvirkjum Akureyrarflugvallar – Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson
  • Umræður um stöðu Akureyrarflugvallar m.t.t. Samgönguáætlunar og fjárlaga

Hér má sjá greinargerð sem Jón Þorvaldur Heiðarsson, hagfræðingur og lektor við Háskólann á Akureyri, vann fyrir Markaðsstofuna. Þar er lagt mat á ávinning af millilandaflugi um Akureyrarflugvöll miðað við fjórar mismunandi sviðsmyndir.

Við hvetjum alla til að mæta og taka þátt í umræðunum.