Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Kynningarfundur vegna áforma um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu

Fundir á Hvammstanga og Þingeyjarsveit næstu daga.
Askja er mikilvægur hluti af ferðaþjónustu á Norðurlandi og hennar umhverfi
Askja er mikilvægur hluti af ferðaþjónustu á Norðurlandi og hennar umhverfi
Föstudaginn 17. ágúst, kl. 12:00-13:00 í Breiðumýri, Þingeyjarsveit og mánudaginn 20. ágúst, kl. 17:00-18:00 í félagsheimilinu á Hvammstanga mun þverpólitísk nefnd sem vinnur að tillögum um þjóðgarð á miðhálendinu kynna störf sín og svara spurningum áhugasamra um verkefnið.
 
Umhverfis- og auðlindaráðherra, skipaði nýverið þverpólitíska nefnd um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu. Í nefndinni eiga sæti fulltrúar allra þingflokka á Alþingi auk tveggja fulltrúa sveitarfélaga. Þá sitja fulltrúar frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og forsætisráðuneytinu í nefndinni.

Verkefni nefndarinnar eru m.a. þau að skilgreina mörk þjóðgarðsins og setja fram áherslur um skiptingu landssvæða innan hans í verndarflokka, fjalla um hugsanlegar aðkomuleiðir og þjónustumiðstöðvar, svæðisskiptingu og rekstrarsvæði og greina tækifæri með stofnun þjóðgarðs á byggðaþróun og atvinnulíf. Jafnframt er henni ætlað að gera tillögur að helstu áherslum í stjórnunar- og verndaráætlunum og atvinnustefnu fyrir þjóðgarðinn og lagafrumvarpi um þjóðgarðinn, þar sem m.a. er tekin afstaða til stjórnskipulags þjóðgarðsins.