Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Eyjafjarðarsveit

Eyjafjarðarsveit

Verkefni 1: Risakusa

Risakusa er samstarfsverkefni Ferðamálafélags Eyjafjarðarsveitar, sveitarfélagsins og Beate Stormo listakonu á Kristnesi. Markmið verkefnisins er að reisa útilistaverk sem vekur eftirtekt og verður hluti af kennileiti svæðisins. Ástæðan fyrir kusunni er skírskotun í þá miklu framleiðslu og mikilvægi Eyjafjarðarsveitar sem mjólkurhéraðs á landsvísu.

Yfirmarkmið er að auka vitund ferðamanna á svæðinu, stuðla að fjölgun þeirra og aukningu á veltutölum hjá þjónustuaðilum. Þá er einnig markmið að Íslendingar viti betur af svæðinu og að það stuðli að vitund á þeirri framleiðslu sem þar fer fram.

Verkefni 2: Hjóla- og gönguleiðir

Kortleggja, merkja, útbúa lýsingar og hnitsetja hjóla- og gönguleiðir í Eyjafjarðarsveit bæði innan sveitar og í tengslum við leiðir yfir í nágrannasveitafélög.

Markmiðið er að nýta þann gríðarlega auð sem landið hefur að bjóða er kemur að útivist og bjóða þannig bæði ferðamönnum og íbúum svæðisins uppá heilsusamlega og góða afþreyingu. Þá er með verkefninu stefnt að því að Eyjafjörður eflist sem áfangastaður ferðamanna sem vilja dvelja á svæðinu til lengri tíma.

Sveitarfélagið hefur í samstarfi við Ferðamálafélag Eyjafjarðarsveitar merkt upp allt að 100km af leiðum sem hægt er að ráðast í að merkja án mikils fyrirvara.

Verkefni 3: Áningastaðir

Efla umferðaröryggi og auka aðsókn ferðamanna á svæðinu. Skortur er á áningarstöðum við vegkerfi í sveitarfélaginu og mikilvægt að efla það til að beina umferð vegfarenda á örugga staði og þangað sem þeir hafa heimild til að vera. Áningarstaðir verða byggðir upp í tengslum við áhugaverða staði, upphaf gönguleiða og annarra staða sem vert er að stoppa á.

Verkefni 4: Garðsárreitur

Garðsárreitur er falin perla í norðanverðri Eyjafjarðarsveit. Markmið verkefnisins er að auka aðgengi almennings og ferðalanga að skógræktinni og gljúfrinu sem þar er. Byggja upp útsýnispall á gljúfurbrúninni sem falið er í skógarreitnum, útbúa góð bílastæði við reitinn og bæta gönguleiðir að útsýnispallinum.

Verkefni 5: Útivistastígur í Eyjafjarðarsveit

Útivistastígurinn milli Hrafnagils og Akureyrar hefur sýnt sig og sannað fyrir íbúa svæðisins, eflt öryggi á svæðinu og opnað fjölmarga möguleika til útiveru og bætt stöðu þjónustuaðila sem við nálægð hans búa.

Mikilvægt er að halda áfram með uppbyggingu stígsins og fara þar austur fyrir Eyjafjarðará um miðbraut og norður með Eyjafjarðarbraut eystri í átt til Akureyrar aftur og búa þannig til öruggan og öflugan útivistahring sem í leið mun fara fram hjá fjölda þjónustuaðila.

Markmiðið er að efla öryggi gangandi vegfarenda, vekja áhuga á svæðinu og stórauka tekjumöguleika þjónustuaðila á svæðinu.