Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Hörgársveit

Verkefni 1: Hjólreiða- og göngustígur

Gerð á nýjum göngu- og hjólastíg milli Lónsbakka og Þelamerkur. Markmið verkefnisins er aukið umferðaröryggi. Stuðla að bættum samgöngum fyrir bæði íbúa Hörgársveitar sem og ferðamenn sem fara gangandi/hjólandi um sveitarfélagið.

Verkefni 2: Hraun í Öxnadal

Gerð deiliskipulags og framkvæmdir á Hrauni í Öxnadal fæðingarstað Jónasar Hallgrímssonar. Markmið verkefnisins er að varðveita Hraun í Öxnadal og gera svæðið og fólkvanginn í Hrauni aðgengilegri ferðamönnum og gestum með bættum gönguleiðum, vegum, upplýsinga- og söguskiltum.

Verkefni 3: Davíðslundur

Endurgerð „Davíðslundar“ - minningarreits um Davíð Stefánsson þjóðskáld, við Fagraskóg í Eyjafirði. Meginmarkmið verkefnisins er efling menningarferðaþjónustu á Norðurlandi. Lagfæra á og endurgera „Davíðslund“, minningarreit um Davíð Stefánsson þjóðskáld, Fagraskógi við Eyjafjörð: Ráðist verði í deiliskipulagsvinnu, endurhönnun garðsins, bætt aðgengi fatlaðra og ferðamanna, framkvæmd nauðsynlegra viðgerða brjóstmyndar og undirstöðu minnisvarða, sem og umferðarmerkingar áningarstaðarins. 

Verkefni 4: Torfbærinn Baugasel í Barkárdal

Viðgerð og viðhald á torfbænum Baugaseli í Barkárdal. Markmið verkefnisins er að varðveita og viðhalda torfbænum Baugaseli. Torfbærinn skapar sérstöðu og aðdráttarafl fyrir Hörgársveit og er markmiðið að tryggja að hann geri það áfram um ókomna tíð svo komandi kynslóðir geti heimsótt bæinn og notið hans á öruggan hátt.

Verkefni 5: Áningastaðir á söguslóðum í Hörgársveit

Uppbygging áningastaða á söguslóðum í Hörgársveit. Markmiðið með verkefninu er að varðveita menningararf sveitarfélagsins og efla menningarferðaþjónustu í Hörgársveit, með sérstakri áherslu á að koma Myrká á kortið sem áningarstað í Hörgársveit og á sama tíma vekja athygli á þjóðsögunni um Djáknann á Myrká. Dæmi um aðra staði eru Skipalón og Hlaðir.