Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Birkistund í Vaglaskógi

28. nóvember kl. 16:00-17:30

Upplýsingar um verð

kostar ekkert

Við bjóðum til birkistundar í eldaskálanum í Vaglaskógi í tilefni útgáfu bókarinnar BirkiVist – BirkiVera: Birki í menningu, listum og lífinu. Þar ætlum við að anda að okkur birkilykt, hlusta á tónlist Svavars Knúts um birki, stunda birkihugleiðslu undir leiðsögn Þuríðar Helgu Kristjánsdóttur, heyra skógarvörðinn Helgu Ösp Jónsdóttur tala um birki sem meira en bara tré, hlusta á Auði Aðalsteinsdóttur lesa upp úr bókinni um menningarlegt gildi birkis og hlýða á ljóð um birki.

Eldaskálinn verður kominn í notalegan jólabúning og boðið verður upp á birkidrykki, ketilkaffi og aðrar léttar veitingar. Hægt verður að kaupa bókina BirkiVist – BirkiVera á tilboðsverði.

Allir velkomnir 

Rannsóknasetur HÍ í Þingeyjarsveit og HULDA - náttúruhugvísindasetur

GPS punktar

N65° 43' 2.998" W17° 54' 1.818"

Sími