Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Boreal Screendance Festival 2026

24. október - 9. nóvember

Boreal Screendance Festival er alþjóðleg dansvídeóhátíð sem fer fram árlega á Akureyri. Hátíðin var fyrst haldin í Mjólkurbúðinni árið 2020 en hefur síðan vaxið og nær nú yfir fleiri sýningarrými í Listagilinu.

Á Boreal eru sýnd dansvídeó eftir listafólk frá Íslandi og víða að úr heiminum. Hátíðin skapar vettvang fyrir dansvídeó sem listform og stuðlar um leið að tengslamyndun, samstarfi og samtali milli innlends og erlends listafólks.

Verkin eru sett fram með fjölbreyttum hætti, meðal annars á breiðtjöldum og með vörpunum á veggi, glugga og aðra fleti sýningarrýmanna. Sum verkanna eru jafnframt hluti af sérstökum innsetningum þar sem rými og umgjörð verða hluti af upplifuninni og gefa verkunum nýja vídd.

Auk sýninga og innsetninga býður Boreal upp á fjölbreytta danstengda viðburði og samkomur meðan á hátíðinni stendur.

Frítt er inn á alla viðburði hátíðarinnar.

Listrænn stjórnandi: Yuliana Palacios

Nánari upplýsingar og dagskrá má finna á heimasíðu og samfélagsmiðlum Boreal Screendance Festival.

https://borealak.is/

https://www.instagram.com/boreal_akureyri/

https://www.facebook.com/borealakureyri

GPS punktar

N65° 41' 2.053" W18° 6' 43.832"

Staðsetning

Akureyri