Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Eyrarrokk 2026

2.- 3. október

Tónlistarhátíðin Eyrarrokk er búin að stimpla sig rækilega inn í menningarflóru Íslands og hefur vaxið með hverju ári en síðast varð uppselt á örfáum dögum. Þetta er sjötta árið sem blásið er í rokklúðrana norðan heiða en hátíðin fer fram sem fyrr á Verkstæðinu á Akureyri helgina 2. – 3. október.

Um er að ræða tvö kvöld, föstudags og laugardagskvöld og koma fram 5 bönd hvort kvöld.

 

Dagskrá 2026:

Dr. Spock, Sniglabandið, Kolrassa Krókríðandi, Dr. Gunni, Strákurinn Fákurinn, Volcanova, Elín Helena, Shape, Drykkir Innbyrgðis, Innvortis.

Kynnir: Ólafur Páll Gunnarsson.

Athuga að það verða aðeins seldir helgarpassar

Miðasala á Tix.is