Upplýsingar um verð
kostar ekkert
Í fjölskyldusmiðjunni munu þátttakendur bregða sér í hlutverk skrifara frá miðöldum þar sem þeir fá tækifæri til að skrifa á skinn (bókfell) með fjaðurpenna og jurtableki undir leiðsögn Mörtu Guðrúnar Jóhannesdóttur safnkennara Árnastofnunar. Hægt verður að fræðast um gerð skinnhandrita og skoða eftirlíkingu af Flateyjarbók ásamt fleiru. Yngri þátttakendur sérstaklega velkomnir.
Viðburðurinn er haldinn í tilefni 20 ára afmælis Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Samstarf Árnastofnunar, Huldu náttúruhugvísindaseturs og rannsóknaseturs HÍ í Þingeyjarsveit.
Sunnudagur 1. nóv. kl: 14:00-16:00 í Breiðumýri