Árlega jólabað jólasveinanna í Dimmuborgum
Dagsetning: 5. desember 2026
Tími: Kl. 16:00
Staðsetning: Jarðböðin við Mývatn
Ekki missa af árlegu jólabaði jólasveinanna úr Dimmuborgum sem fer fram í Jarðböðunum við Mývatn þann 5. desember kl. 16:00!
Bræðurnir eru misjafnlega spenntir fyrir þessari árlegu hefð og sumir þeirra vildu eflaust vera að gera eitthvað allt annað svona rétt fyrir jólin. Til að gera málin enn skemmtilegri þurfa þeir nú að rata um glænýja aðstöðu og enn stærra baðlón!
Ekki missa af þessari einstöku og skemmtilegu jólaupplifun!
Athugið: Í nýju aðstöðunni verða eingöngu seldir aðgöngumiðar í böðin. Ekki verður boðið upp á sérstaka áhorfendamiða fyrir þá sem vilja fylgjast með af bakkanum.
Ef þú vilt hitta jólasveinana úr Dimmuborgum í þeirra náttúrulega umhverfi er hægt að bóka heimsókn til þeirra hér. Þeir taka á móti gestum á völdum dögum yfir aðventuna.