Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Jólabærinn minn – Aðventugleði í Safnahúsinu á Húsavík

27.-28. nóvember

Jólabærinn minn – Aðventugleði í Safnahúsinu á Húsavík

Dagsetning: 27.–28. nóvember 2026

Jólabærinn minn verður haldinn í þriðja sinn í Safnahúsinu á Húsavík dagana 27.–28. nóvember. Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Tónlistarskóla Húsavíkur og Candybar Norðurland og hefur á undanförnum árum fest sig í sessi sem hluti af jólaundirbúningi bæjarins.

Boðið verður upp á notalega aðventustemningu fyrir alla fjölskylduna með fjölbreyttum jólamarkaði, lifandi tónlist, piparkökukeppni og ljúffengum veitingum. Á markaðnum verður meðal annars hægt að kynna sér handverk, hönnun, matvörur og ýmsar gjafavörur frá ólíkum framleiðendum og söluaðilum.

Viðburðurinn hefur fengið góðar viðtökur undanfarin ár en í fyrra heimsóttu yfir 700 gestir Safnahúsið þessa helgi.

Áhugasamir söluaðilar og aðrir sem vilja taka þátt í dagskránni geta haft samband við skipuleggjendur með því að senda tölvupóst á dagny@husmus.is.

Nánari dagskrá verður auglýst síðar.

GPS punktar

N66° 2' 49.165" W17° 20' 13.611"