Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Jólailmur í Hofi

22. nóvember kl. 12:00-19:00
Sunnudaginn 22.nóvember verður haldin hönnunar- og handverkshátíðin Jólailmur í menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Þetta er í 3. skiptið sem Jólamarkaður er haldinn í Hofi og orðinn fastur liður í jólastemningu bæjarbúa.🎄
 
Opið er fyrir umsóknir til og með 10. október. Hægt er að sækja um með því að smella á link í fyrstu athugasemd.🎄
 
Fyrirspurnir varðandi Jólailm 2026 má senda á netfangið jolailmur@gmail.com.
 
Hlökkum til að taka á móti ykkur og sýna gróskuna handverki og hönnun á Íslandi. Hof verður komið í hátíðarbúning og við vonumst til að upplifa saman hugljúfa og skemmtilega jólastemmningu með allskonar vörum og góðgæti