Hinn árlegi Jólamarkaður í Skjólbrekku verður haldinn laugardaginn 5. desember frá kl. 12:00-17:00 og sunnudaginn 6. desember frá kl. 12:00-16:00.
Markaðurinn verður hinn glæsilegasti og fjölbreytt úrval af norðlensku handverki og matvöru til sölu.
Kvenfélag Mývatnssveitar verður með vöfflu og kaffi/kakósölu!
Laugardaginn 5. desember verður opnunarhátíð Jólasveinanna í Dimmuborgum frá kl. 11-14 og jólasveinabaðið í Jarðböðunum við Mývatn kl. 16.
Komdu og gerðu þér glaðan dag í Mývatnssveit fyrir jólin!