Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur víðsvegar um Norðurland þar sem sjávarbyggðir svæðisins fyllast af lífi, gleði og fjölbreyttri dagskrá fyrir alla aldurshópa. Meðal þeirra staða sem taka þátt í hátíðarhöldunum eru Akureyri, Dalvíkurbyggð, Hrísey, Skagaströnd og Ólafsfjörður.
Gestum gefst tækifæri til að upplifa einstaka stemningu, taka þátt í skemmtilegum viðburðum og heiðra mikilvægt hlutverk sjómanna og sjávarútvegs í íslensku samfélagi.
Nánari upplýsingar og dagskrá fyrir hvert bæjarfélag má finna á heimasíðum sveitarfélaganna ásamt beinum hlekkjum hér fyrir neðan.
Sjómannadagurinn í Dalvíkurbyggð
Sjómannadagurinn á Skagaströnd
Sjómannadagurinn á Hvammstanga - Kaffisala og listasýning Félags Eldri Borgara