Skúnaskrall - Öll saman - Barnamenningarhátíð Norðurlands vestra verður haldin 21. október – 4. nóvember og nú má sko byrja að hlakka til!
Í tvær vikur mun landshlutinn fyllast af sköpun, leik og listum, með viðburðum um allt Norðurland vestra. Börn fá að hlusta, horfa, syngja, dansa, leika, prófa, skapa og láta ljós sitt skína í sinni eigin heimabyggð. Áherslan er menning fyrir börn, menning með börnum og menning sköpuð af börnum.
Börn eiga rétt á að njóta menningar og lista - það kemur meira að segja fram í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og póstnúmerið á aldrei að ráða því hvort barn fær að kynnast töfrum listarinnar.