Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Sólstöðuhátíð á Kópaskeri

14.-21. júní
Nokkrar röskar konur tóku að sér að skipuleggja Sólstöðuhátíðina í ár, ásamt Atvinnu- og samfélagsfulltrúa Öxarfjarðarhéraðs. Reynt verður að hafa fjölbreytta dagskrá sem höfðar til sem flestra. 😊 🎈
 
Áherslan í ár verður að minnast þess að 50 ár eru liðin frá stóra skjálftanum sem reið yfir þann 13. janúar 1976. Hefur hann fengið viðurnefnið Kópaskersskjálftinn.
Á laugardeginum verður því einskonar jarðskjálftahátíð frá kl. 14:00 – 17:00. 🌍 🏘️
 
Hefst hún kl. 14:00 með skjálftamessu í Snartarstaðakirkju. Þar munu þrír brottfluttir Kópaskersbúar, sem voru börn á þessum tíma, segja frá upplifun sinni þennan dag og dagana í kring. Þau eru Kristín Helga Friðriksdóttir, Þórný Barðadóttir og Grímur Örn Jónsson.
Sr. Magnús G. Gunnarsson leiðir messuna og kór Snartarstaðakirkju syngur nokkur lög á milli ræðumanna.
Að messu lokinni verður farið yfir í Byggðasafnið þar sem sveitarstjóri og forstöðumaður Menningamiðstöðvar Þingeyinga ávarpar gesti. Jafnframt verður þar opið hús og leiðsögn um örsýningu Skjálftasetursins, sem nýlega hefur verið komið þar fyrir með áherslu á myndir og viðtöl við nokkra sveitunga sem upplifðu atburðina. Frítt er á safnið og getur fólk líka kynnt sér Byggðasafnið sjálft en það er gríðarlega merkilegt safn.

Að því loknu liggur leiðin í Skólahúsið á Kópaskeri þar sem myndband með viðtölum og fréttamyndum frá þessum degi rúllar á stórum skjá. Þar er einnig að finna jarðskjálftahermi sem hermir eftir skjálfta af svipaðri stærð og sá sem reið yfir 13. janúar 1976 og býðst börnum (ungum sem öldnum) að prófa. Þá verður öllum gestum boðið til kaffisamsætis í Stóru-Mörk og verður hægt að flakka á milli beggja staða.
 
Athugið að prjónaganga verður frá Byggðasafninu. Fólk hittist fyrir utan Byggðasafnið eftir messu og gengur prjónandi að Skólahúsinu á Kópaskeri. Allt prjónaáhugafólk er velkomið.
Þetta árið verða hátíðahöld vegna 17. Júní hluti af Sólstöðuhátíð og ratleikur í ganga alla helgina. Hægt að senda inn svör til miðnættis á sunnudag 21. júní.
Það er gaman að segja frá því að þetta árið má segja að hátíðin standi yfir í viku en sunnudaginn 14. júní verður Mugison með útitónleika við Útskála og þann 17. júní munu systkinin frá Tjörn í Svarfaðardal vera með tónleika í Skólahúsinu undir nafninu Blood Harmony.
 
Nákvæmari lýsing á dagskrá hátíðarinnar:
Sunnudagur: 14.06.26
15:00 – 16:00 - Mugison með útitónleika við Útskála
“Þetta verður gegggggjað - eitt fallegasta útsýni landsins - beint út á djúpið ☀️ Þegar ég á leið um fer ég alltaf þangað og gapi út í eilífðina og hugsa "lífið, ja hérna hér". Þetta verða litlir kósý tónleikar - endilega tryggið ykkur miða, koma svo með teppi eða útilegustól, kakó, saft og kleinur - búum til unaðstund - þetta verður einstakt - hlakka svakalega til að sjá ykkur öll. Stuðkveðja, Mugison.”
Hér er hlekkur á viðburðinn.
https://www.facebook.com/events/972769575162264
 
Miðvikudagur: 17.06.26
20:00 - Sólstöðutónleikar Flyglvina í Skólahúsinu.
Blood Harmony – Verð 3.500 – Posi á staðnum
Blood Harmony er samstarfsverkefni systkinanna Arnar Eldjárn, Aspar Eldjárn og Bjarkar Eldjárn sem hófst snemma árs 2021 þegar heimsfaraldurinn skall á og sökum þess voru þau flutt í heimahagana fyrir norðan. Þau umbreyttu kjallaranum á æskuheimilinu Tjörn í upptökustúdíó og hófu að taka upp lög sem Örn og Ösp höfðu bæði samið í gegnum árin en aldrei fundið þeim farveg fyrr en í þessu verkefni. Nú fimm árum síðar er loksins komið að því að fagna útgáfu plötunnar, Simple Pleasures sem komin er út á vínyl og geisladisk og verður hún til sölu að tónleikum loknum. Þau leika lög af plötunni í heild sinni, auk ábreiða af lögum sem eru í uppáhaldi hjá systkinunum.
Tónleikaröð Flygilvina á árinu 2026 er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra.
Þann 17. júní opnar kaffihúsið Aðalsteinn við gistiheimilið Mela á Kópaskeri. Opið frá 14:00 – 17:00.
 
Föstudagur: 19.06.26
18:30 - Björgunarsveitin Pólstjarnan verður með grill fyrir utan Stóru-Mörk. 🥩
Verð er 4500 fyrir fullorðna og 2500 fyrir börn á grunnskólaaldri. Posi á staðnum.
20:00 - Tónleikar í Skólahúsinu – Kór Snartarstaðakirkju – Frítt inn
Sr. Magnús hefur verið að æfa kórinn ásamt liðsauka úr öðrum sóknum.
Hljómsveitin Snarrót verður með tónleika í Kötlubúð á Kópaskeri um kvöldið.
23:30 - Sólstöðuganga Ferðafélagsins Norðurslóðar
Ferðafélagið Norðurslóð efnir til sólstöðugöngu að vanda. 🚶‍♂️🚶‍♀️
Leiðarlýsing:
Gengið í kringum Brunavatnið.
Sólstöðuganga Ferðafélagsins Norðurslóðar verður föstudagskvöldið 19. júní og verður gengið í kringum Brunavatn á vestanverðri Melrakkasléttu. (5,8 km.)
Lagt verður af stað frá Nýhöfn, fremst á Leirhafnartanga kl. 23:30.
Mætum klædd eftir veðri í skemmtilega útivist. Ekki sakar að hafa með sér drykk og miðnætursnarl.
 
Laugardagur: 20.06.26
10:00 – 11:00 - Íþróttaálfurinn og Solla stirða mæta í þorpið og skemmta. Þetta er frábær fjölskylduskemmtun. 👨‍👩‍👧‍👧
Staðsetning: Grasblettur austan við Skólahúsið.
11:00 – 13:30 - Afþreying og leikir fyrir börn á öllum aldri á vegum Ungmennafélagsins Þingeyings. 🤾‍♀️⚽
12:00 – 13:00 - Ungmennafélagið Þingeyingur grillar pylsur fyrir börnin á milli leikja og skemmtunar. 🌭
14:00 – 17:00 - Jarðskjálftahátíð – 50 ára afmæli Kópaskersskjálftans (sjá umfjöllun hér að framan). 🌍🏘️
Flóamarkaður og kökusala, á vegum Kvenfélags Öxfirðinga, verður í Skólahúsinu frá kl. 11:00 – 17:00.
 
Sunnudagur 21.06.26
Sunnudagsganga 🚶‍♂️🚶‍♀️
13:00 - Farið frá Skólahúsinu, gengið út að vitanum og þaðan út með ströndinni að gömlu fjárborginni.
Vegalengd ca. 5,5 km
 
Um helgina verður hægt að fara í fjórhjólaferðir um svæðið með Localtours ATV 🚜
Farið í 1 klst. ferð með leiðsögumanni um svæðið á fjórhjólum.
Verð á hjól er 15.000 fyrir hvern einstakling miðað við að 2 séu á hjóli en 20.000 ef 1 er á hjóli. 50% afsláttur er fyrir yngri en 16 ára.
Farið er frá skólahúsinu og nauðsynlegt er að bóka fyrirfram á localtoursatv@gmail.com eða í síma 893-3831
Fjöldi ferða fer eftir pöntunum
Sjá nánar á www.fjorhjolaferdir.com
 
Myndlistarsýningin „Á tánum“ verður í Bragganum Yst við Öxarfjörð um sumarsólstöður 19.-21. júní 2026, Opið frá kl. 11:00 – 16:00 – Frítt inn.
 
Íbúar eru hvattir til að flagga, bæði á 17. júní og á Sólstöðuhátíð.
 
Íbúar eru hvattir til að skreyta þorpið með gulu og appelsínugulu. 🛕 🏰
 
Endilega takið þátt í hátíðinni með okkur og gerum hana að þeim stórkostlega viðburði sem hátíðin á skilið. 💗 🥳

 

GPS punktar

N66° 18' 23.053" W16° 28' 4.539"

Staðsetning

Kópasker

Sími