Upplýsingar um verð
Á þessu stefnumóti er boðið upp á örfyrirlestra frá aðilum frá Árnastofnun, Háskólanum á Akureyri og fleirum. Í hverjum örfyrirlestri er kafað í eitt áhugavert efni á aðgengilegan, skemmtilegan, fræðandi eða listrænan hátt. Á eftir gefst tími í spjall og spurningar.
Dagskrá:
Hljóð- og hulduheimar Þingeyjarsýslu - Trausti Dagsson og Rósa Þorsteinsdóttir
Talís-verkefnið - Hermína Gunnþórsdóttir og Kristín Margrét Jóhannsdóttir
Rista-vél: Núritunartungumál á íslensku - Jack Armitage
Orðabækur og gögn - Kristín Ingibjörg Hlynsdóttir
„Maður er náttúrulega svo stoltur af því að vera Norðlendingur“: Viðhorf Norðlendinga til eigin framburðar - Finnur Friðriksson og Kristín Margrét Jóhannsdóttir
Umræður
Stefnumótið er haldið í samstarfi Árnastofnunar, rannsóknaseturs HÍ í Þingeyjarsveit, Háskólans á Akureyri, Framhaldsskólans á Laugum og Huldu náttúruhugvísindaseturs. Opinn viðburður og allir velkomnir
Sunnudagur 1. nóv. kl: 17:00-18:30 í bíóhúsinu á Laugum í Reykjadal