Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Engimýri

- Gistiheimili

Engimýri Lodge & Restaurant er notalegt sveitahótel í hjarta Öxnadals, við rætur Tröllaskaga og við þjóðveg 1, aðeins 34km frá Akureyri. Staðurinn er umkringdur tignarlegum fjöllum, hraunbreiðum og víðáttumiklu útsýni yfir dalinn og er kjörinn áningarstaður fyrir ferðalanga á hringveginum.

Á veitingastaðnum okkar bjóðum við upp á heimilismat úr íslensku hráefni, þar á meðal íslenska kjötsúpu, fiskisúpu, fisk og franskar, bleikju, hamborgara, grænmetisrétti og fleira. Með matnum er boðið upp á nýbakað brauð og ljúffenga eftirrétti. Gestir sem gista hjá okkur byrja daginn á veglegu morgunverðarhlaðborði, en ferðalangar sem eiga leið hjá eru ávallt velkomnir að staldra við í kaffi eða kvöldmat.

Við bjóðum upp á 16 þægileg herbergi, bæði standard herbergi með sameiginlegum baðherberjum og superior herbergi með sérbaðherbergi og fjallaútsýni. Ókeypis Wi-FI, bílastæði og heitur pottur utandyra með útsýni eru innifalin fyrir gesti hótelsins. Einnig eru á staðnum stæði fyrir húsbíla og campervan-bíla með aðgangi að rafmagni og vatni.

Opið er frá byrjun júní fram í miðjan október. Hópar eru sérstaklega velkomnir. Hafið samband við okkur til að fá hagstæðustu hópaverðin og til að bóka borð fyrirfram. Fyrir einstaklinga og smærri hópa er einfaldast að bóka beint í gegnum vefsíðuna okkar. 

Engimýri

Engimýri

Engimýri Lodge & Restaurant er notalegt sveitahótel í hjarta Öxnadals, við rætur Tröllaskaga og við þjóðveg 1, aðeins 34km frá Akureyri. Staðurinn er