Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Mývatn Öl

- Barir og skemmtistaðir

Mývatn Öl er fjölskyldurekið handverksbrugghús sem á rætur að rekja til Sels, fjölskyldufyrirtækis með yfir 50 ára sögu á Skútustöðum við Mývatn. Sel var stofnað árið 1973 sem lítil verslun, fljótlega bættist við veitingastaður og þróaðist síðan með tímanum í Sel-Hótel Mývatn, þar sem þau hafa tekið á móti ferðamönnum frá öllum heimshornum síðan árið 2000.

Í byrjun árs 2022 hófu þau spennandi nýjan kafla með því að brugga eigin handverksbjór. Frá byrjun var markmiðið að bjórarnir væru í takt við einstaka náttúru Mývatnssvæðisins. Þess vegna eru allir bjórarnir nefndir eftir stað eða manneskju frá svæðinu.

Upprunalega brugghúsið er staðsett á Kaffi Sel, kaffihúsinu og minjagripaverslunin við hlið hótelsins. Þar geta gestir enn séð upprunalegu tækin, sem þau notum enn í dag til að prófa og þróa nýja bjóra.

Þegar eftirspurn eftir Mývatn Öl jókst fluttu þau framleiðsluna í stærri og nútímalegri aðstöðu nokkrum metrum frá upprunalega brugghúsinu í Kaffi Seli, sem gerði okkur kleift að auka framleiðslu verulega. Þrátt fyrir flutninginn er upprunalega aðstaðan á Kaffi Sel enn hjartað í starfseminni, staðurinn þar sem hugmyndir kvikna og nýjar bragðtegundir verða til.

Hjá Mývatn Öl er hver einasti bjór handgerður af ástríðu, allt frá ferskum lagerbjórum til kraftmikilla IPA-bjóra og árstíðabundna sérbjóra. Þau vona að hver sopi færi þig nær landslaginu og fólkinu. 

Mývatn Öl

Mývatn Öl

Mývatn Öl er fjölskyldurekið handverksbrugghús sem á rætur að rekja til Sels, fjölskyldufyrirtækis með yfir 50 ára sögu á Skútustöðum við Mývatn. Sel
Gestastofan Gígur

Gestastofan Gígur

Gestastofan Gígur í Mývatnssveit er opin allan ársins hring. Þar veita landverðir og þjónustufulltrúar gestum fræðslu og upplýsingar um náttúrufar, gö
Sel-Hótel Mývatn

Sel-Hótel Mývatn

Sel – Hótel Mývatn er kjörinn dvalarstaður fyrir þá sem vilja kynnast náttúruperlum Mývatns og stórbrotnu umhverfi þess. Hótelið stendur á einstökum s
Hótel Laxá

Hótel Laxá

Hótel Laxá var opnað árið 2014 og stendur við hið fallega Mývatn. Á hótelinu er að finna tvær herbergistegundir: standard herbergi og herbergi með úts
Mývatn

Mývatn

Mývatn er fjórða stærsta stöðuvatn á Íslandi, 37 km2 á stærð, mjög vogskorið og í því eru um 50 eyjar og hólmar. Rykmý setur mjög svip sinn á umhverfi

Aðrir (3)

Ferðaþjónusta bænda Skútustöðum Skútustaðir 660 Mývatn 464-4212
Safarihestar Álftagerði 3 660 Mývatn 864-1121
Skútaís - Heimaafurð úr Mývatnssveit Skútustaðir 2b 660 Mývatn -