Fuglasafn Sigurgeirs var opnað 17. ágúst 2008. Markmið safnsins er að veita fræðslu um fugla, lífríki Mývatns og hvernig Mývetningar nýttu vatnið sér til samgangna og framfærslu. Í safninu eru allir íslenskir varpfuglar ásamt um 100 tegundum af eggjum.
Auk þessa er á sér-sýningu ýmiss búnaður sem heimamenn notuðu við veiðar á Mývatni í gegnum tíðina.
Ef hópar eru á ferðinni utan reglubundins opnunartíma er alltaf hægt að hringja og ath hvort við getum ekki opnað.