Hótel Húsavík er staðsett í hjarta Húsavíkur. Frá því er mjög gott útsýni yfir bæinn og höfnina. Sjóböðin eru í næsta nágrenni og þá tekur aðeins um 5 mínútur að ganga t.d. að Hvalasafninu. Við hliðina á hótelinu eru tvær sýningar, Eurovision-sýningin og Könnunarsafnið. Eurovision-sýningin sýnir upprunalega búninga og leikmuni frá stærsta tónlistarviðburði heims, sem og Netflix-kvikmyndinni “Eurovision Song Contest – The Story of Fire Saga”, sem var að hluta til tekin upp á Húsavík. Könnunarsögusafnið (The Exploration Museum) er safn um sögu land og geimkönnunar. Aðal sýningarrými safnsins er helgað geimferðum, æfingum amerískra tunglfara á Íslandi árin 1965 og 1967, sem og tilraunageimskotum frakka sem áttu sér stað hér á landi frá 1964 til 1965. Þá er ýtarlega fjallað um landkönnun víkinga og norrænna manna.
Á notalega barnum okkar, Jaja Ding Dong er hægt að njóta sérstakra kokteila innblásinna af kvikmyndinni, bjórs af krana og sérrétta frá framleiðendum á staðnum.
Frábær staðsetning til að ferðast um Norðurland og skoða helstu náttúruperlur svæðisins eins og Mývatnssveit, Ásbyrgi, Dettifoss og fleiri staði.