Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Dyngjufell - Ferðafél. Akureyrar/FÍ

- Fjallaskálar

Skáli Ferðafélags Akureyrar Dyngjufell í Dyngjufjalladal er norðvestan undir Dyngjufjöllum, var byggður árið 1993. Skálinn er 3,7 km í suðvestur frá Lokatindi. Gisting er fyrir 16 manns í kojum, svefnpokapláss á dýnum. Í skálanum er kynding með steinolíueldavél, gashella og eldhúsáhöld. Vatn fæst oft úr læk í grennd við skálann. Skálinn er öllum opinn en ætlast er til að göngufólk sitji fyrir um gistingu. Gönguleið er frá Dreka um Öskju og Jónsskarð að skálanum og þaðan í Suðurárbotna.

Þeir sem hafa áhuga á að gista í skálanum hafi samband við skrifstofu FFA.

GPS: N65°07,48 W16°55,28
Dyngjufjalladalur. Olíueldavél, áhöld, kamar, lækur.

Dyngjufell - Ferðafél. Akureyrar/FÍ

Dyngjufell - Ferðafél. Akureyrar/FÍ

Skáli Ferðafélags Akureyrar Dyngjufell í Dyngjufjalladal er norðvestan undir Dyngjufjöllum, var byggður árið 1993. Skálinn er 3,7 km í suðvestur frá L