Tjaldsvæðið á Hauganesi er staðsett í rólegu sjávarþorpi við utanverðan Eyjafjörð, um 20 mínútna akstur frá Akureyri og 10 mínútur frá Dalvík. Tjaldsvæðið er opið yfir sumartímann og tekur á móti tjöldum, hjólhýsum, ferðavögnum og húsbílum.
Á svæðinu eru rafmagnstengingar, salerni, sturtur, uppþvottaaðstaða og þvottaaðstaða. Nýtt tjaldsvæði með fleiri rafmagnstengingum hefur verið tekið í notkun og býður upp á rúmgóð stæði í rólegu umhverfi.
Í stuttri göngufjarlægð eru Fjöruböðin á Hauganesi, heitir pottar við sj ávarsíðuna með aðstöðu til sturtu og búnings. Einnig er veitingastaðurinn Baccalá Bar, fiskbúð, minjagripaverslun og hvalaskoðunarfyrirtækið Whales sem býður upp á daglegar ferðir yfir sumarið.
Hauganes er tilvalinn staður fyrir þá sem vilja njóta kyrrðar við Eyjafjörð en hafa jafnframt greiðan aðgang að afþreyingu og þjónustu.
Nánari upplýsingar, verð og greiðslur má finna á fjorubodin.is.