Hamrar er vel búið tjaldsvæði við útivistarsvæðið í Kjarnaskógi, aðeins nokkurra mínútna akstur frá miðbæ Akureyrar. Tjaldsvæðið er umkringt birkiskógi og klettabeltum og er frábær kostur fyrir þá sem vilja njóta náttúrunnar án þess að vera langt frá þjónustu bæjarins.
Svæðinu er skipt upp í rúmgóðar tjaldflatir með góðri aðstöðu fyrir tjöld, hjólhýsi, fellihýsi og húsbíla. Á svæðinu eru meðal annars þjónustuhús með salernum og sturtum, eldhús- og setuaðstaða, þvottaaðstaða, rafmagnstengingar og aðstaða til losunar ferðasaletta.
Hamrar eru sérstaklega fjölskylduvænt tjaldsvæði með leiksvæðum, minigolfi, bátaleigu og fjölbreyttum útivistarmöguleikum í Kjarnaskógi. Fjölmargar göngu- og hjólaleiðir liggja um skóginn og golfvöllur Akureyrar er í næsta nágrenni.
Tjaldsvæðið er opið allt árið en full þjónusta er yfir sumartímann.