Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu
Markaðsstofa Norðurlands og SSNV bjóða til opins kynningarfundar um nýtt markaðsverkefni í ferðaþjónustu mánudaginn 12. október kl. 18:00 í Krúttinu á Blönduósi.
Farið verður yfir verkefnið, þær áherslur sem hafa mótast og næstu skref. Bragi Valdimar Skúlason og Ingvar Örn Ingvarsson frá Instrument taka þátt í kynningunni, og að henni lokinni gefst tími fyrir spurningar og umræður.
Súpa verður á boðstólum og við hvetjum öll áhugasöm til að mæta, kynna sér verkefnið og taka þátt í umræðunum.