Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Aðalfundur Markaðsstofu Norðurlands

Markaðsstofa Norðurlands boðar til aðalfundar þriðjudaginn 11. maí 2021 kl. 13:00-15:00. Fundurinn verður haldinn í fjarfundi og skráðir þátttakendur fá hlekk á fundarkerfi.

Markaðsstofa Norðurlands boðar til aðalfundar þriðjudaginn 11. maí 2021 kl. 13:00-15:00. Fundurinn verður haldinn í fjarfundi og skráðir þátttakendur fá hlekk á fundarkerfi.

Dagskrá:

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Afgreiðsla ársreiknings
  3. Afgreiðsla fjárhagsáætlunar
  4. Stjórnarkjör
  5. Kjör endurskoðenda
  6. Starfshættir stjórnar
  7. Önnur mál 

Stjórnarmenn eru kosnir á aðalfundi stofnunarinnar. Stjórn stofnunarinnar er skipuð fimm mönnum og tveimur varamönnum. Miða skal við að tveir stjórnarmenn og einn varamaður komi af Norðurlandi vestra og þrír stjórnarmenn og einn til vara frá Norðurlandi eystra. Stjórnarmenn eru kosnir til tveggja ára í senn. Varamenn eru kosnir til eins árs í senn. Annað hvert ár skal kosið um tvo stjórnarmenn en hitt árið um þrjá stjórnarmenn og er það raunin í ár.

Framboð frá samstarfsfyrirtækjum til stjórnar þurfa að koma fram í síðasta lagi 3 dögum fyrir aðalfund og eru áhugasamir beðnir að tilkynna framboð til framkvæmdastjóra.

Á aðalfundi fer hvert samstarfsfyrirtæki Markaðsstofunnar með atkvæði samkvæmt sínum gjaldflokki, 1 atkvæði fyrir lægsta flokk, 2 atkvæði fyrir næstlægsta flokk og svo framvegis upp í 5 atkvæði fyrir efsta gjaldflokk. Skilyrði þess að samstarfsfélög Markaðsstofu Norðurlands geti nýtt atkvæði sín á aðalfundi er að þau séu skuldlaus við Markaðsstofu Norðurlands.

Skráning á aðalfund fer fram hér: www.northiceland.is/is/moya/formbuilder/index/index/adalfundur-2021 

Nánari upplýsingar um MN er að finna hér: http://www.nordurland.is/is/markadsstofan/frettir-af-innra-starfi

Skipulagsskrá MN má sjá hér: www.nordurland.is/static/files/PDF/Starfsemi/markadsstofanordurlands-skipulagsskra-20.mai14.pdf 

Breytingartillaga að skipulagsskrá, vegna Áfangastaðastofu-samninga: https://www.northiceland.is/static/files/PDF/Starfsemi/skipulagsskra-breyting-drog-13apr21.pdf