Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Aðalfundur Markaðsstofu Norðurlands 2024

Markaðsstofa Norðurlands boðar til aðalfundar fimmtudaginn 30. maí 2024 kl. 13:00. Fundurinn verður haldinn á veitingastaðnum Verbúðin 66, Hrísey. Öll eru hvött til þess að mæta á fundinn og athygli er vakin á því að aðeins þau sem mæta á staðinn geta tekið þátt í kosningu til stjórnar.

Markaðsstofa Norðurlands boðar til aðalfundar fimmtudaginn 30. maí 2024 kl. 13:00. Fundurinn verður haldinn á veitingastaðnum Verbúðin 66, Hrísey. Öll eru hvött til þess að mæta á fundinn og athygli er vakin á því að aðeins þau sem mæta á staðinn geta tekið þátt í kosningu til stjórnar.

Dagskrá:

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Afgreiðsla ársreiknings
  3. Afgreiðsla fjárhagsáætlunar
  4. Stjórnarkjör
  5. Kjör endurskoðenda
  6. Starfsreglur stjórnar
  7. Önnur mál
  8.  Erindi
    • Linda María – Ferðaþjónustan í Hrísey
    • Jóhannes og Diljá frá SAF – Tekjur sveitarfélaga af ferðaþjónustu
    • Ársæll Harðarson – Fjarmarkaðir, hvernig er staðan í Asíu?

Stjórnarkjör

Framboð frá samstarfsfyrirtækjum til stjórnar þurfa að koma fram í síðasta lagi 24. maí og eru áhugasöm beðin um að tilkynna framboð til framkvæmdastjóra, arnheidur@nordurland.is.

Núverandi stjórn MN er skipuð þessum einstaklingum:

Aðalmenn: Viggó Jónsson(NV), Drangeyjarferðir- formaður, Sara Sigmundsóttir(NE), Hvalaskoðun Akureyrar, Sigrún Huld Sigmundsdóttir(NE), Berjaya Hotels, Ármann Örn Gunnlaugsson(NE), Sjóböðin og Örn Arnarson(NV), Hótel Laugarbakki.

Varamenn Tómas Árdal(NV), Arctic Hotels og Þorbjörg Jóhannsdóttir(NE), Höldur

Kosið er um eitt sæti stjórnarmanns á Norðurlandi vestra (Örn Arnarson) og eitt sæti stjórnarmanns á Norðurlandi eystra (Sigrún Huld Sigmundsóttir).

Úr skipulagsskrá

Stjórnarmenn eru kosnir á aðalfundi stofnunarinnar. Stjórn stofnunarinnar er skipuð fimm mönnum og tveimur varamönnum. Miða skal við að tveir stjórnarmenn og einn varamaður komi af Norðurlandi vestra og þrír stjórnarmenn og einn til vara frá Norðurlandi eystra. Stjórnarmenn eru kosnir til tveggja ára í senn. Varamenn eru kosnir til eins árs í senn. Annað hvert ár skal kosið um tvo stjórnarmenn en hitt árið um þrjá stjórnarmenn en í ár er kosið um tvo stjórnarmenn.

Á aðalfundi fer hvert samstarfsfyrirtæki Markaðsstofunnar með atkvæði samkvæmt sínum gjaldflokki, 1 atkvæði fyrir lægsta flokk, 2 atkvæði fyrir næstlægsta flokk og svo framvegis upp í 5 atkvæði fyrir efsta gjaldflokk. Skilyrði þess að samstarfsfélög Markaðsstofu Norðurlands geti nýtt atkvæði sín á aðalfundi er að þau séu skuldlaus við Markaðsstofu Norðurlands.

Hægt er að senda fulltrúa með umboð á fundinn. Senda þarf umboð með tölvupósti á bokhald@nordurland.is fyrir aðalfund.

Skráning og nánari upplýsingar

Skráning á aðalfund fer fram hér

Nánari upplýsingar um MN er að finna hér: www.afangastadastofa.is

Skipulagsskrá MN má sjá hér: www.northiceland.is/is/static/files/PDF/Starfsemi/skipulagsskra-samthykkt-22.06.2021.pdf