Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Aðalfundur Markaðsstofu Norðurlands

Markaðsstofa Norðurlands boðar til aðalfundar fimmtudaginn 19. maí 2022 kl. 10:00. Fundurinn verður haldinn á Hótel Kea og í fjarfundi og skráðir þátttakendur fá hlekk á fundarkerfi.
Aðalfundur Markaðsstofu Norðurlands 2022
Aðalfundur Markaðsstofu Norðurlands 2022

Markaðsstofa Norðurlands boðar til aðalfundar fimmtudaginn 19. maí 2022 kl. 10:00. Fundurinn verður haldinn á Hótel Kea og í fjarfundi og skráðir þátttakendur fá hlekk á fundarkerfi.

Dagskrá:

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Afgreiðsla ársreiknings
  3. Afgreiðsla fjárhagsáætlunar
  4. Stjórnarkjör
  5. Kjör endurskoðenda
  6. Starfsreglur stjórnar
  7. Önnur mál 

Stjórnarkjör

Framboð frá samstarfsfyrirtækjum til stjórnar þurfa að koma fram í síðasta lagi 5. maí og eru áhugasamir beðnir að tilkynna framboð til framkvæmdastjóra. (Ekki bárust fleiri framboð en laus sæti)

Rafrænar kosningar vegna stjórnarkjörs verða frá 6. maí til 13. maí  klukkan 12:00 þar sem framboð og kynning á þeim verða birt á heimasíðu MN. Kjörgögn berast til skráðra samstarfsfyrirtækja. 

Skráningu á aðalfund lýkur 12. maí.

Stjórn MN er skipuð þessum einstaklingum:

Aðalmenn: Viggó Jónsson(NV), Drangeyjarferðir- formaður, Guðmundur Þór Birgisson(NE), Jarðböðin, Sigrún Huld Sigmundsdóttir(NE), Icelandair Hotels, Steinunn Heba Finnsdóttir(NE), Strikið og Örn Arnarson(NV), Hótel Laugarbakki.

Varamenn Tómas Árdal(NV), Arctic Hotels og Þorbjörg Jóhannsdóttir(NE), Höldur

Kosið er um tvö sæti stjórnarmanna á Norðurlandi eystra (Sigrún Huld Sigmundsdóttir, Steinunn Heba Finnsdóttir) og eins stjórnarmanns frá Norðurlandi vestra (Örn Arnarson). Sitjandi stjórn býður sig fram aftur. (Ekki bárust fleiri framboð en laus sæti)

Úr skipulagsskrá

Stjórnarmenn eru kosnir á aðalfundi stofnunarinnar. Stjórn stofnunarinnar er skipuð fimm mönnum og tveimur varamönnum. Miða skal við að tveir stjórnarmenn og einn varamaður komi af Norðurlandi vestra og þrír stjórnarmenn og einn til vara frá Norðurlandi eystra. Stjórnarmenn eru kosnir til tveggja ára í senn. Varamenn eru kosnir til eins árs í senn. Annað hvert ár skal kosið um tvo stjórnarmenn en hitt árið um þrjá stjórnarmenn og er það raunin í ár.

Á aðalfundi fer hvert samstarfsfyrirtæki Markaðsstofunnar með atkvæði samkvæmt sínum gjaldflokki, 1 atkvæði fyrir lægsta flokk, 2 atkvæði fyrir næstlægsta flokk og svo framvegis upp í 5 atkvæði fyrir efsta gjaldflokk. Skilyrði þess að samstarfsfélög Markaðsstofu Norðurlands geti nýtt atkvæði sín á aðalfundi er að þau séu skuldlaus við Markaðsstofu Norðurlands.

Skráning og nánari upplýsingar

Skráning á aðalfund fer fram hér: www.northiceland.is/is/mn/frettir/adalfundur

Nánari upplýsingar um MN er að finna hér: www.afangastadastofa.is

Skipulagsskrá MN má sjá hér: www.northiceland.is/is/static/files/PDF/Starfsemi/skipulagsskra-samthykkt-22.06.2021.pdf