Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Niceair á Dohop!

Nú er mögulegt að bóka flug með Niceair í gegnum vefsíðu Dohop, vinsælustu flugleitarvélar á Íslandi.

Nú er mögulegt að bóka flug með Niceair í gegnum vefsíðu Dohop, vinsælustu flugleitarvélar á Íslandi. Í fyrstu verður beint flug Niceair aðgengileg á vefnum en í framtíðinni einnig tengiflug til fleiri áfangastaða í gegnum Dohop Connect, tengiþjónustu Dohop.

„Tilkynnt var um hið nýja flugfélag 17. febrúar s.l. en það mun einbeita sér að því að fljúga erlendum ferðamönnum frá Bretlandi og Danmörku til Akureyrar og þjónusta jafnframt heimamarkaðinn með vikulegu flugi til Tenerife,“ segir í tilkynningunni.

„Það er mikil bylting fyrir heimamarkaðinn að geta bókað sig til hundruð áfangastaða erlendis í gegnum tengivelli félagsins í Stansted og Kastrup, auk þess sem Akureyrarflugvöllur verður nú bókanlegur með beinu flugi utan úr heimi í fyrsta sinn. Akureyri er nýr áfangastaður í áætlunarflugi á Íslandi og því spennandi kostur fyrir ferðamenn, ekki síst endurkomufarþega, sem hafa heimsótt höfuðborgarsvæðið og Suðurlandið í fyrri heimsóknum, en vilja nú upplifa meira,“ er haft eftir Þorvaldi Lúðvík Sigurjónssyni, framkvæmdastjóra Niceair.

„Við væntum mikils af því að útvíkka þennan möguleika enn frekar í samstarfi við Dohop og þeirra samstarfsaðila meðal erlendra flugfélaga, þannig að bókunar-og leitarferli fyrir okkar farþega verði enn einfaldara” segir Þorvaldur Lúðvík.

Dohop hefur þróað hugbúnað og tengimöguleika fyrir flugfélög og ferðaþjónustu í 18 ár. Nýjasta afurð félagsins er Dohop Connect sem býður flugfélögum upp á að selja tengiflug með fjölmörgum flugfélögum til hundruð áfangastaða um allan heim.

„Það er ánægjulegt að nýjasta flugfélagið skuli velja okkur til að þróa með sér lausnir fyrir sína farþega sem ferðast um Akureyrarflugvöll. Tengimöguleikar út frá Akureyri eru fjölmargir og verða með lausn Dohop enn aðgengilegri fyrir heimamarkaðinn. Dohop Connect lausnin er hentug fyrir lítil félög eins og Niceair, en með aðild að því útvíkkar félagið leiðakerfi sitt á einfaldan hátt,“ segir Davíð Gunnarsson, framkvæmdastjóri Dohop.