Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Nýtt vetrarmyndband frá Norðurlandi

Nýtt kynningarmyndband fyrir áfangastaðinn Norðurland er komið í loftið. Myndbandið dregur fram það sem gerir Norðurland að einstökum vetraráfangastað, þar sem fjölbreytt upplifun, mannlíf og landslag í vetrarbúningi fara saman.

Vetrarferðaþjónusta er mikilvægur þáttur í að efla heilsársstarfsemi á Norðurlandi og skapa grundvöll fyrir fjölbreyttri þjónustu og atvinnu allt árið. Svæðið hefur alla burði til að taka vel á móti gestum yfir vetrarmánuðina, með öflugum ferðaþjónustufyrirtækjum, fjölbreyttri afþreyingu, góðri gistingu og veitingastöðum, ásamt náttúrunni og mannlífinu sem einkennir Norðurland. Nýja myndbandið dregur þessa heild fram og styður við kynningu á svæðinu sem vetraráfangastað. Þráinn Kolbeins tók upp efnið og klippti myndbandið saman.

Við hvetjum samstarfsfyrirtæki til að deila myndbandinu áfram og nýta það að vild í sínu kynningarefni. Til að fá myndbandið eða efni úr því má hafa samband við Signýju á netfanginu signy@nordurland.is.

Myndbandið er aðgengilegt á YouTube og samfélagsmiðlum Visit North Iceland.