Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Samstaða um sjálfbæra ferðaþjónustu - Vinnustofa

Vinnustofan „Samstaða um sjálfbæra ferðaþjónustu“, verður haldin þann 18. maí 2022 í Hofi á Akureyri, frá 10-17.

Vinnustofan „Samstaða um sjálfbæra ferðaþjónustu“, verður haldin þann 18. maí 2022 í Hofi á Akureyri, frá 10-17.

Áhersla á sjálfbærni er að verða meiri með hverju árinu. Stjórnvöld hafa sett sér það markmið í samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna að íslensk ferðaþjónusta verði leiðandi í sjálfbærni fyrir árið 2030.

Hjá Markaðsstofu Norðurlands er unnið eftir stefnu stjórnvalda, enda til mikils að vinna þar sem eftirspurn eftir sjálfbærum áfangastöðum eykst sífellt. Svissneska ráðgjafafyrirtækið og ferðaskrifstofan Kontiki var einnig fengin til samstarfs í þessari vinnu og verður vinnustofan haldin á ensku. 

Eftir ítarleg samtöl við hagsmunaaðila, bæði á Norðurlandi og landsvísu er nú komið að því að boða alla hagsmunaðila saman á vinnustofu, til að hittast og þróa aðgerðaráætlun svo ferðaþjónusta á Norðurlandi geti orðið sjálfbær.

Lögð verður áhersla á að norðlensk ferðaþjónusta:

  • Skapi ávinning samfélagið
  • Skapi staðbundna verðmætasköpun allt árið
  • Verndi náttúru og dýralíf
  • Nýti endurnýjanlega orku og loftslagsvænar lausnir

Ferðaþjónustan er fjölbreyttur starfsvettvangur og við viljum því fá sem flesta með okkur í þessa vegferð. Öllum er boðið að vera með: Heimamönnum, gististöðum, söfnum, athafnafólki, landeigendum, stjórnmálafólki, félagasamtökum, ferðaþjónustuaðilum, menntastofnunum og fleirum - rödd þín skiptir máli!

Vinsamlegast deildu þessum viðburði með vinum þínum, samstarfsfólki og öðrum sem gætu haft áhuga á að stuðla að sjálfbærri ferðaþjónustu á Norðurlandi.

Boðið verður upp á léttan hádegisverð, án endurgjalds.

Smelltu hér til að skrá þig

Ef einhverjar spurningar vakna, vinsamlegast sendið póst á audur@nordurland.is

Vinnustofan er partur af verkefninu „Sjálfbær ferðaþjónusta á Norðurlandi“ sem er styrkt af SSNE og SSNV.